|
Hinn 8. nóvember árið 1991, þá talaði Guð til Eiríks Sigurbjörnssonar, að setja upp kristilega sjónvarpsstöð á Íslandi. Eiríkur sótti um sjónvarpsleyfi og fékk heimild til að sjónvarpa 24 tíma á sólarhring. Eftir 9 mánaða undirbúning, þá hóf sjónvarpsstöðin Omega útsendingar, hinn 28. júlí 1992. Í upphafi, þá hafði stöðin aðeins 10 watta sendi, en ári seinna var 1000 watta sendir settur í staðinn og þrír endurvarpssendar. Síðar var settur upp aflmikill sendir á Vatnsendahæð. Ýmsir þekktir prédikarar hafa heimsótt Ísland, á vegum Omega. Stærstu samkomuherferðirnar voru árin 1994 og 1995, þegar prédikarinn Benny Hinn heimsótti Ísland og þúsundir einstaklinga komu til Krists. Í ágúst árið 1998, flutti stöðin stúdíó og skrifstofur sínar í stærra húsnæði að Grensásvegi 8 í Reykjavík. Nú ná útsendingar stöðvarinnar með sendum á jörðu niðri, til suðvesturhluta landsins og Suðurlands, þar sem um 75% þjóðarinnar býr.
Á dagskrá stöðvarinnar,
eru m.a. íslenskar samkomur og spjallþættir.
|
Eiríkur Sigurbjörnsson heimsþekktum sjónvarpsprédikurum eins og Benny Hinn, Joyce Meyer, Robert Schuller o.fl. Nokkrum af íslensku spjallþáttunum er sjónvarpað í beinni útsendingu. Áhorfendur eru hvattir til að hringja til stöðvarinnar og leggja fram bænar- og þakkarefni. Hinn 1. júní 2002, hóf Omega útsendingar allan sólarhringinn frá Íslandi til meginlands Evrópu, á nýrri gerfihnattarás, sem kölluð er Gospel Channel Europe. Útsendingar Gospel Channel nást einnig mjög vel á Íslandi, aðeins þarf gerfihnattdisk og starfrænan gerfihnattamóttakara. | |||
|
|
||||