Mig langar til að gefa
vitnisburð varðandi tíund.
Vegna sjúkleika, hef ég ekki
getað sótt kirkju í langan tíma. Þetta orsakaði það, að ég varð kærulaus
varðandi tíund. Drottinn áminnti mig fyrir þetta og sýndi mér fram á að
ég yrði að líta á kristilegt sjónvarp, sem mína kirkju og blessa það með
tíund og fórnargjöfum.
Ég og maðurinn minn, höfðum
gengið í gegnum erfiðan tíma, þegar það virtist vera ósýnileg hindrun í
öllu okkar lífi. Maðurinn minn þurfti að eyða talsvert miklu í
rútuferðir til og frá vinnu, sem hafði slæm áhrif á fjárhaginn. Við
áttum bíl, en maðurinn minn féll margsinnis á bílprófinu.
Okkur fannst að Drottinn vildi
að við gætum eignast húsið sem við bjuggum í, með því að kaupa það af
bæjarfélaginu.
Til þess að af því gæti orðið,
þurftum við að fá hagstæða endurfjármögnun á öllum okkar skuldum, þannig
að mánaðarleg afborgun yrði ekki meira en 65.000 kr., sem virtist nánast
útilokað.
Við reyndum þetta margsinnis, en
það gekk ekki upp.
Við hjónin vissum bæði, að við
yrðum að vera hlýðin Drottni varðandi tíundina, jafnvel þótt mannlega
séð þyrftum við á hverjum eyri að halda.
Þegar ég spurði manninn minn,
hvort það væri í lagi hans vegna að við byrjuðum að skila tíund til
kristilegs sjónvarps, þá var hann samþykkur því og honum fannst að við
ættum að leggja fjármagnið til Gospel Channel.
Nú eru liðnir nokkrir mánuðir og
margt hefur breyst.
Maðurinn minn náði að ljúka
bílprófinu.
Verðbréfafyrirtækið sem við
höfðum talað við, bauð skyndilega skuldabréfalán með afborgun sem var
töluvert fyrir neðan þá upphæð sem nefnd var hér að framan.
Manninum mínum var síðan boðið
mun betur launað starf, við að setja upp gerfihnattadiska, og innifalið
eru ferðir til og frá vinnu.
Okkur hafði aldrei órað fyrir
því, hvað óhlýðni varðandi tíund getur hindrað mikla blessun. Við höfðum
ekki áttað okkur á því, hversu heimskulegt það er að halda frá Drottni,
því sem Hann á.
Við höfum fengið að reyna það,
að Guð er trúfastur Guð (Malakí 3:3). En við þurfum líka að vera trúföst
við Guð. Ef þú ert þegar í fjárhagslegum vanda, þá hefurðu engu að tapa.
Ég og maðurinn minn getum sagt þér, að þú munt aldrei sjá eftir því.
Með kærleikskveðju í Jesú
Kristi,
Systir Audrey í Englandi”
-------------------------
Vinarkveðja,