Fréttabréf Omega

                                                                         

                                          Maí 2006

   Ágæti vinur.
 

  Ég sendi þér bestu kveðjur frá Sjónvarpsstöðinni Omega.

  Eins og flestir hafa tekið eftir, þá erum við með mjög mikilvægt átak til að geta haldið áfram útbreiðslu á Orði Guðs í Austurlöndum nær, til Norður Afríku (og einnig um alla Evrópu).

  Í mörgum af þessum löndum er bannað að hafa kristna söfnuði eða aðra kristilega starfsemi.

  Samt sem áður, eru milljónir af kristnu fólki á þessu svæði, sem nærast og styrkjast á útsendingum Sjónvarpsstöðvarinnar Omega daglega. Þessi kristilega uppbygging kemur héðan frá Íslandi.

  Stuðningur þinn bjargar lífi!

  Í þessari viku var kona í Evrópu að horfa á Omega (Gospel Channel). Hún hringdi inn á bænalínuna vegna þess að dóttir hennar hafði reynt að fremja sjálfsvíg.

  Hún sagði: “Ég kom út af baðherberginu og fann þá 18 ára dóttur mína liggjandi á gólfinu. Omega (Gospel Channel) var á skjánum. Ég hringdi í símanúmerið á skjánum og sagði: “Þið eruð að prédika það að Guð geti gert kraftaverk NÚNA! Dóttir mín andar enn, vinsamlega biðjið fyrir henni NÚNA STRAX!””

  Við sögðum: “Settu símann við eyrað á henni og leggðu hina hönd þína á höfuð hennar.“ Svo töluðum við líf inn til hennar og höstuðum á anda sjálfsvígs. Hún er á lífi í dag!

  Eins og staðan er núna, þá vantar fjármagn til að halda áfram þessu mikilvæga trúboði. Samingur okkar við gervihnattafyrirtækið er til 3 ára. Nú er eftir eitt og hálft ár af samningstímanum. Við getum ekki stoppað á miðju tímabilinu, við verðum að halda áfram.

  Það verk sem verið að vinna hér, er á fárra manna höndum. Það er mikið álag á öllum sem starfa á Sjónvarpsstöðinni Omega. En þökk sé Guði, sem gefur okkur ávallt uppörvun og styrk í gegnum það fólk sem Guð á hér á Íslandi, sem tekur þátt í þessu með okkur með dýrmætum stuðningi, sem er okkur ómetanlegur.

  Við þurfum ekki að deyja ráðalaus, því Guð á alltaf svar í öllum kringumstæðum.

  Um leið og við höfum náð að leysa þetta verkefni, munum við snúa okkur að málum er varða málefni Omega hér heima.

  Það er okkur kappsmál að fá inn nýja dagskrá á Omega og fjármagn til íslenskrar textunar. Til þess þarf enn fleiri verkamenn í víngarð Drottins.

  Sá textabúnaður sem við höfum notað hér á Omega, er nú orðinn 14 ára gamall og er algjörlega úr sér genginn.

  Nýr textabúnaður mundi auðvelda okkur að texta meira efni fyrir Omega. Núna er verið að leita eftir tilboðum í þennan búnað. Það er markmið okkar, að auka verulega fjölbreytni í dagskrá Omega.

      Vinarkveðja,

  Eiríkur Sigurbjörnsson